Hvað viltu Hvað viltu eiginlega frá mér
Hvað viltu að ég sjái í þér
Þú þykist segja mér sannleika
En það er ekkert annað en þú að feika
Sannleikurinn þinn kostar líka alltaf sitt
Hjarta mitt
Tárin mín
Og öll lygarorðin þín

En svo hringiru allt í einu aftur
Hlærð og segir að ég sé klikkuð
Hvað er það
Hvernig er með það
Erum við allt í einu vinir í dag

Þú segist ekki vilja mig
En hringir á hverjum degi
Þú segist þurfa að finna þig
Hvað viltu að ég segi

En þegar þú kemur í hinnsta sinn
Og segir að nú sé tíminn
Þá máttu mér það ekki ljá
Er ég sé mér fært um að fá
Að segja þér, hreint og beint
Orð þín koma allt of seint.