Jæja, kem ég og er leiðinlega gellan. Ég held samt að þú gætir hugsanlega kunnað að meta það Glúbbi gamli. Mér finnst orðinu titrandi vera svo stórkostlega ofaukið þarna. Ljóðið verður þrefalt betra við að taka það út. Það verður minna væmið, þú losnar við ofstuðlunina og merkingin verður hnitmiðaðri, hittir betur í mark. Eins kannski óþarfi að hafa augun með greini. Augu þín finnst mér allavega hljóma betur. Að öðru leyti, þ.e.a.s. þegar ég er búin að laga þetta ljóð til að þessu tvennu leyti, finnst mér það æði.