Frostrós

Ég sé ókunnugt fólk
brosa, hlæja og skemmta sér

Ég heyri glaðlegan söng í fjarska
ókunnugt lag og ég skil ekki orðin

Ég sé strá standa upp úr snjónum
stolt yfir að hafa ekki bugast af þunganum

Ég sé spegilmynd mína á frosnu vatninu
leggst á ísinn og langar til að hverfa

Eins og einmana frostrós á kaldri rúðu
Datt ekkert smellið í hug..