Manstu það
högg hjartans og músina í maganum nartandi
svimann og vottinn af kvíðanum
við það að hitta þig

Fannst þú það ?
Kitlið við hverja snertingu, og feimnina
gleðina og þránna
við það að sjá þig

Sástu það ?
Þegar ég brosti og vissi ekki hversvegna
ljósið í augunum
og þig

Veistu það ?
Þessar tilfinningar eru þar enn
þú
kitlar hjartað mitt