(ég held að ég sé tæknilega fatlaður, því ég sendi þetta sama
ljóð inn áðan en get ekki fundið það og held að eitthvað
hafi klikkað, allvega, smá trega ljóð)

Höfuð hennar, líkt og sveipað væri sólu,
vakti himinin og strauk mér um kinn.
Hún var móðir alls lífs, lífgjafi minn
og leiðarvísir tilvistarlausrar sálar.

Höfuð hennar, líkt og sveipað væri gulli
auðgaði minn hug og gaf mér sýn.
Sýn án sjónar, von án drauma
og svefn er ég vakti.

En sólin sest á hverjum degi
og gullið selur eigandann ódýrt.
svo í dag lifi ég án dags,
allslaus til minningar um dýrðina