Meika þetta ekki lengur

Ó! Bara eins og gengur
meika þetta ekki lengur
er ekki að höndla að þú sért farin
er kramin á hjarta og á sálu marin

af hverju varstu að fara
please! Ekki segja “af því bara”
ég veit að lífið áfram gengur
meika þetta samt ekki lengur

einn daginn þú hættir að sjást
og ég varð að lifa við að vona
en til hvers að þjást
þetta þarf ekki að vera svona!

dæmalaust hvað dæmið er leitt
dagarnir áfram skríða
ég fíla ekki að fá engu breytt
að hanga eins og fáviti og bíða

þegar þú kemur aftur verður allt major gaman
þá förum við og tökum heiminn upp bæði saman
sýnum liðinu hvað er virkileg ást
common elskan látum það sjást

meika þetta ekki lengur
meika þetta ekki lengur
meika þetta ekki lengur

fade




þessi texti verður endurbættur af undirrituðum þegar fram líða stundir

hefur þú hugmynd fyrir textann - láttu heyra í þér

arnarson