Í fjallasal
flýgur álftin
í frelsinu

Vindar helsis
blása úr norðri
þróttin kæla

Barnið grætur
í kaldri nóttinni
móðurlaust

Haturshel
hræðir sálir
deyðir von

Álftin baðar
milda vængi
í himnasal