tárin
taka ekki
tilgangsleysið í burtu

þau
skilja eftir
svarthol svikinna vona

hið innra

einsemd svo sára
að annað er hjóm

og
eftir að
bliki augnanna
blæðir út að lokum

er bleksvart tómið
svo takmarkalaust

án vona