með akkeri á herðunum
og áfengi í æðunum
án þess að blása úr nös…
ég gæti synt baksund alla leið til Antartíku
með fjallgönguskó á fótunum
og handjárn á höndunum
án þess að blása úr nös…
ég gæti stundað taumlaust kynlíf í margar vikur
með leðurgrímu á höfðinu
og rjómatertu í maganum
án þess að blása úr nös…
en í lífsgæðakapphlaupinu?
gat bara hlaupið nokkra metra…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.