Það á að dæma mann til dauða.

þeir úthrópa hann sem dauðann mann
og ákveða að fría sig allri ábyrgð,
þeir leyfa honum að velja hvernig dauða hann kýs helst.
Eitur! þrumar hann, eitur skal ég drekka.

Honum er færður bikar fullum af myrkri,
er hann dreypir á mjöðinum finnur hann hvernig myrkrið
faðmar heiladingulinn og hoppar af kátínu á milli heilahvelanna.

Hann hnýgur niður á hnén máttvana og ringlaður
en nær að hrópa “látum oss nú snæða!”