Kannski of mörg tvöföld línubil? Mér var allavega bent á um daginn að það gæti verið tilgerðarlegt og hef verið að íhuga það síðan, er ekki alveg komin að niðurstöðu en held þó að ég muni takmarka línubil í framtíðinni. Það er þó smekksatriði, ljóðið er mjög fallegt og ég held að þetta sé langbesta útgáfan af því.
Ég fíla þetta alveg í tætlur, en ég finn ekki réttu orðin til að segja hvað mér finnst. Þannig að í augnablikinu skulum við kalla það gott og láta þar við sitja:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..