eins og krækiber í hásölum helvítis
hellti það úr hjarta sínu
og hugarfylgsnum
yfir ókunnug andlit úr öllum áttum
og uppskar að launum
lof og prís
hafði svo hvergi höfði sínu að halla
heim götuna vandraði gráti nær
og galtómt híði
með hrat í hjarta
upprifna und
og ískaldar minningar
um einsemd og harðæri horfins tíma
og helsára þanka