Sit og stari
í myrkrið
ekkert að sjá
nema eigin hugarverur,
draugar fortíðarinnar.
Sit og stari
í myrkrið
ekkert að heyra
nema eigin andadráttur,
hjartsláttur.
Sit og stari
í myrkrið
ekkert að óttast
nema eigin ótti
sem hann ræður við
-verndarengillinn minn
Skrifað 29.04 2003