óbjóður lífs míns
svífur um loftið
haldið fyrir vit þíns
annars munu þér deyja
ég hef deytt marga
í gegnum árin
en hver mun mér farga
til að dauði lífs míns kæfist
ég veit ekkert
ég skil ekkert
ég er ekkert
nema gufa sem svífur eins og draugur dauðans
grænt loft sem fáir sjá
virðist vera ósköp saklaus gufa, en
en hvað er ég þá?
stórhættulegt efni sem flýtur inn um glugga
eða einungis reykur frá brennandi sinu
eitt sem ég sé
eitt sem ég veit
ég er ekkert sem þú vilt sjá
ég mun farga öllu því lífi sem fyrir mér verður
og þegar ég kem að þér
já þegar ég kem að þér, mun ég deyja