Með krafti stormsins
færi ég þér lífið.

Í svefni mun ég elska þig.
Í svefni skal ég drepa þig.

Eins og áttavilltur einfari,
tvífari,
sé ég ekki sólina fyrir myrkrinu.
Vil
ekki sjá.

Hvernig næri ég hjartað þitt
með þjáningum mínum?

Fellibylur í brjósti mér
skyggir á heiðskýrt loftið.
Leiðin heim er horfin.

Í svefni mun ég elska þig.
Í svefni hef ég drepið þig.
Ha-gka-up