Heldurðu að þú getir rétt þinn hlut af – það er of seint
Dregið sjálfan þig upp úr pyttinum – það er of seint
Hoggið burt hlekkina er þig fjötra – það er of seint
Tekið niður grímuna afhjúpað lygina – allt er of seint


Tíminn líður og klukkan tifar títt
Dregur þig sífellt ofan í kviksyndið
Fallöxi tímans gefur engin grið – hún gefur engin grið


Torsótt er að feta einstigi sannleikans – það er of seint
Fallvaltur ferill flótta ljótleikans – það er of seint
Veit svo vel þú vildir stíga aðra vegu – það er of seint
Fjötraður ert sem Fenrisúlfur bitur – allt er of seint


Tíminn líður og klukkan tifar ótt
Dregur þig sífellt ofan í kviksyndið
Fallöxi tímans gefur engin grið – hún gefur engin grið