Abigel.
Frábært ljóð hjá þér & frábær húmor í því líka.
Mjög flott.
En hvað eru allir að segja að Abigel sé ekki að samþykkja nein ljóð inná greinar!
Hún getur auðvitað ekki samþykkt öll ljóð og restin fara á korkinn.
Hmpf, það er búið að láta ljóð eftir mig inná korkinn, samt er ég ekkert að svekkja mig yfir því.
Það merkir að ég þarf að gera betur en þetta til að komast inná greinar með ljóð frá mér, allavega betur en þetta ljóð sem ég sendi og fór inná korkinn.
Lítið frekar á þetta sem áskorun um að leggja ykkir betur fram og gera betur!
Ég er sjálf buin að vera að vinna í einu ljóði í dálítinn tíma og er að reyna bæta það áður en ég ætla að senda það inn.
Okey, ég er ekki að segja að öll þessi ljóð inná korkinum séu illa gerð, ég er bara að segja að það koma betri ljóð inn líka, og þau fara inná greinar.
Hvað sem þetta mál snýst um annars…úff.
Allavega Abigel,..Flott hjá þér.