Við tölum í hringi
og krossa.
Og orðtáknin,
táknorðin
þyrlast,
sveiflast,
dansa,
dj öflast
í kringum okkur.
Í stríðum flaumi
stóryrða
erum við strandaðir glópar
á eyju
án merkingar.

Við tölum í hringi
og krossa,
læst í svikamyllu
óræðra orða.