hún dansaði í rakri sálu minni
með öfugt M í hjartastað
og hvert skipti sem ég fóðraði blóð mitt
horfði hún í augun á sjálfri sér og sagði;

málaðu mynd af andartakinu

sem gerði mig ódauðlega…