óviðbúinn
fékk ég ör
beint
í hjartastað

óvænt
skaut ég
bogamanninum
skelk í bringu

honum
brást
nefnilega
bogalistin

því í
hjartastað
mínum
var grjót