Uggar hafsins stranda
og úr dimmum sandi klettanálar rísa
roði í fjarska
örlög trölla
um aldir alda.
Híbýli anda og vætta
þú þriggja tinda segull
kjarnhús móður jarðar
lómast yfir skýin
jökulbláminn duli.
Regnbogans klæði þig skreyta
drunuþungur ómar
vatnsengi tungla
brunn hugans nærir
heilar sjálfstæða þjóð.
Teygir þig til vesturs
sjávarbjargið látrar
brimalending margra
beltið svarta og dimma
undir fuglaómi og skugga
eru Íslands synir grafnir.