Haustköld
hvíslar gangstéttin
vegaljóðum
að fótum mér.

Hráblaut
syngur blánóttin
tregasöngva
við vinga minn.

Hryninn
slá fætur mínir,
alblóðugir,
á leið til þín.