Gölturinn minn er svaka sveittur,
hann svitnar eins og svín.
Svitinn hans er voða beittur
og bragðast eins og vín.
Gölturinn' minn svitnar eins og hani,
svo hann neyddist að fara í bað.
Það reyndist því miður hans bani
og hakkaði hann í spað.
Í svitanum myndaðist mikill kraftur,
og gufaði' upp eins og ský.
Þarna var hann kominn aftur,
gölturinn reis upp á ný.