Hugurinn fanginn
í eigin kviksyndi

Kviksyndi ógrátinna tára
og bældra minninga
lítillar konu

sem lærðist ungri
að bera sorgir sínar og syndir
á borð fyrir hvern sem var

en faldi þær vandlega
fyrir vökulum augum eigin sála