Ég veit að ég hef sagt þér áður
Að “ég elska þig” og hef reynt að
Segja þér hve mikils virði þú ert mér-
En ég velti því fyrir mér hvort að þú í alvöru
Vitir hversu sterkar og einlægar
Tilfinningar mínar eru, og hve djúpt ég er snortin
Af tilfinningum þínum.
Þú ert svo ljúf og sérstök persóna;
Og þú lætur mér finnast ég “sérstök” bara með
Því hvernig þú talar við mig, og hlustar á mig,
Og deilir með mér hlýjunni í snertingum þínum
Og þrám hjarta þíns.
Ég vil gefa þér svo mikið til baka….
Því að ég elska þig,
Og vil bara láta þig vita…
Hvað það er góð tilfinning inní mér
Þegar brosið mitt sést
Og hjartað mitt frátekið,
Hugsanir mínar allar fyrir þig….