Hyldýpi eymdar minnar
speglast í vatninu.
Nakin lúti ég niður og
drep hendi í ískalt vatnið.
Í gárunum sýnist ásjóna mín
eldri en mín gamla sál.
Hringirnir í vatninu
eru árhringir æfi minnar.
Knúin áfram af ókunnri þörf
sting ég mér á kaf í
hyldýpi eymdar minnar.