Hæ :o)
Er að reyna að semja á íslensku…væri gott að vita hvað má breyta og bæta.
*****************************
Ein á báti,
á lekum dalli.
Úti á regnhafi.
Hvergi er sker að finna.
Ég hef ekkert gert
nema rekið stefnulaust.
Marga morgna og miðnætti,
hef ég eytt ein.
Þar sem þú hverfur mér sjónum…endar heimurinn minn.
Hafið gleymir engu og geymir allt.
Ég held áfram minni för og leit.