ég skalf
og nötraði
vissi lítið í minn haus
þetta ísheita ágústkvöld
í Greece
ég orgaði
og vældi
vissi ekki hver ég var
þetta funkalda ágústkvöld
í Greece
ég brann
og ég fraus
lá í köldu svitabaði
þetta eldkalda ágústkvöld
í Greece
ég hlæ
og ég græt
er ég hugsa um það núna
þetta ljúfsára ágústkvöld
á Greece