Dularfull dýpt hafsins
dregur mig nær sér.
Það kallar á mig,
komdu, komdu.
Ég hlusta, heyri
söng þess hljóma
einhvers staðar inn í mér.

Það hefur krækt
klóm sér í hjarta mér.
Dregur mig til sín.

Dularfull dýpt hafsins,
dregur mig til sín.
Ég fer, sný ekki aftur.

Nú sef ég í þögn hafsins,
ekkert vekur mig.