Ég ranghvolfi
augasteinum mínum
í kafsundi um minningaflæði
heilasellna minna.
Ég skapa blaðvöndul
úr þessu eina augnabliki
sem ég átti eftir í minningadálknum…
…gerður fyrir þig
og fleygi því í ruslafötuna.
Í örvæntingu hvolfi ég fötunni.
_________________________________________________