Langan veginn hann tölti,
á sínu rölti,
hesturinn minn,
hann Gráni,
um skikann sinn á Skáni.
Í Svíþjóð sér hann undi,
ýmsar góðar stundir
hesturinn minn,
hann Gráni
í skikanum sínum á Skáni.
Hann fékk að lokum nóg,
og datt niður og dó,
hesturinn minn
hann Gráni
í skikanum sínum á Skáni.
Hann áfram þar liggur dægrin löng,
með fánann blakandi í hálfa stöng,
hesturinn minn,
hann Gráni
í skikanum sínum á Skáni.