Konan
Í vatninu liggur horfna konan
með augun full af ljósi,
hún heldur á einhverju fallegu
og er klædd í hvítan kyrtil.
Eitt haustið hvarf hún
og skildi ekki eftir sig neitt,
nema lyktina af brenndum rósum
og óteljandi drauma.
Ég stend í sandinum og horfi
á konuna og draumana og ljósið;
það eru ský á sjöunda himni
og dropar falla í vatnið.