Næturkyrrðin
Kínverskt tákn
yin og yang:
hringlaga flötur;
hvítur og svartur.
Svart í hvítu
hvítt í svörtu;
óræður sorti
óendanlegur ís.
Allt flæðir
kemst aldrei heim
skín stundum
stundum ekki.
En ómar alltaf
fyrir utan og innan
um næturkyrrðina
undir ísnum.