Þú ert lítill og ljóshærður drengurinn minn
og liggur í rúminu þínu
ég kom til að hugga og hughreysta þig
og halla að brjóstinu mínu
var það ég sem að brást var það ég eða Guð
ég veit því er erfitt að svara.
En það veit ég þó að sé eilífðin öll
ein þjáning mun ást mín samt vara.