Þú fýkur eins og
laufblað

í síbreytilegri
íslenskri
vindátt

staldrar við
(mislengi)
hjá ólíklegustu tilfinningum
(misdramatískum)

fellur
að lokum til jarðar
örmagna eftir flugið
og veist að á morgun

verðurðu
að vera sterku