Blóð englana drípur af himninum
sársauka öskur vindkviðum feikir
Þú ert bundinn af reiði
og píndur með hugsunum þínum

Að moldu ertu kominn, og moldin þú ert
Við erum öll syndug,
því hinn fordæmdi ávöxtur bragðaðist best

Er það endar þitt líf
þessi kvöl sem það er
er það snertir þig kalt
og þitt hjarta frís hratt
er það deyðir þig þessi síðasta stunga
líkt og fugl án vængja þú gefst upp
er það neyðir þig útí hið myrkra
líf sem að þig sækir að

er þínar síðustu tilfinningar svífa burt
augun þín lokast hægt
Þinn hinsti andardráttur finnur sína leið
inní hina eilífu nótt sorga