Kom!
Göngum tvö inn í kalda nóttina.
Kyrra.
Ó, stjörnum stráða stilla…
stund eilífðarinnar og staður.
Eitt andartak, - Lífið
drúpir höfði er hrynjandi
hjartanna þagnar.
Þau haldast í hendur
og horfa í augu hvors annars,
renna saman í eitt
andartak. - Lífið
silast áfram…
Svalur
morgunroðinn rífur
andartak eilífðarinnar.
Frost!
Tveir naktir líkamar
umvafnir hvítu líni foldarinnar,
vakna aldrei…
af vímunni.