Vaknaði í dimmu herbergi,
umvafinn djúpri þögn.
Fjórir veggir
gráir og gluggalausir.
Þröngir og þrúgandi
skríða veggirnir sjálfir
sífellt nær og nær.
Loftleysi kæfandi.
Fálmandi fingur
leita gluggans að frelsinu.
Högg.
Högg.
Hvítu hnúar blóðrisa
þið skuluð sigra vegginn.