Ástin birtist mér einn dag,
fagurlega búin í þér.
Bros þitt blés í kulnaðar glæður,
sem lifðu þrátt fyrir allt
- enn í þessu gamla hjarta.