Aldan reynir að ná í börnin mín.
Hún sleikir sandinn
og ég veit
að saltbragðið af steinunum
kveikir henni
brennandi kenndir
og eðlislæga þörf,
að komast yfir þau öll með tölu
og draga með sér niður í djúpin.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.