Ég leit djúpt í augu þér
og gleymdi mér um stund.
Nú ráfa ég eirðarlaus og
áttavillt um
ranghala sálar þinnar.
Hugsanir þínar hringsóla
stefnulaust,
umlykja mig,
varna mér vegarins út.