Mig langar að yrkja ljóð um Palestínu,
um börnin með augun svo brún,
en hjörtun full af angist,
sem ekki má vera til, ekki tekin gild.
Þið voruð ekki fædd réttu megin,
þjáning ykkar aðeins neðanmáls.
Guð valdi víst hina,
segir sjónvarpsstöðin sannkristna.
Þið eigið að deyja þæg og prúð,
skilja að ykkar er lífið ekki.