Þakka þér fyrir GuntranKraft.Já aukastuðlarnir eru viljandi settir inn.Og ég reyndi það einnig í 2 og 4 línu annars erindis . skín mér ástin þín í annari línu 2 erindis, þar er sterk áhersla á ‘essin ’. Og litla kisu-ljúfan mín í fjórðu línu 2 erindis, þar eru ‘ellin’ aukastuðlar.
Hvernig til hefur tekist með það verða aðrir að dæma um. Það er ekki von að þú skiljir fjórðu línu 2 erindis .Ég skildi hana ekki sjálf nú þegar ég leit aftur á hana ,eftir að þú komst með þína athugasemd varðandi hana. Þá sá ég mér til skelfingar að þar er ásláttarvilla . Þar á að standa ‘göfga’en ekki gófga. Ég verð greinilega að flýta mér hægar. Og bið afsökunnar á þessu. Þakka þér fyrir ábendinguna. cocobana.