Í ljóssporum daganna
liggja vængbrotnir fuglar
bernskra minninganna.

Í blámóðu aftansins
bærast glitofin ský
einnar hvíthærðrar ævi.

Í dumbrauðri nóttinni
dansa æskan og ellin hönd í
hönd á vit hinna ókomnu tíma.