Ég veit að áin
sem sem flýtur um gljúfrin
flæðir yfir bakka sína
og vökvar akrana og engin,
tárunum sem ég hef safnað.

Varnargarðar
úr vonlausri viðleitni,
ísnálasaumuðum eldþræði
og sigtuðum sandi
renna út í eitt.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.