Ég bölva þér!
Þú bindur mig í dróma þinn
Þú sópar burtu innblæstri mínum
Þú deyfir niður huga minn, hjarta og sál
Þú bælir niður tilfinningar mínar
Þú vilt gera mig að heimskum Ameríkana
Þú sviptir mig lífsreynslu og gefur mér falsmyndir í staðinn
Þú stelur frá mér ímyndunaraflinu
Þú rænir mig frumlegri hugsun
Þú breytir mér í vélmenni
Þú slekkur á mér
Þú stjórnar lífi mínu
Ég bölva sjálfum mér
fyrir að leyfa þér það!
Ekki lengur!