Þeir hlaupa um og púla
og hlaupa áfram á fullri ferð
vilja gera aðra fúla
og sækjast eftir að fá bikarsverð.

En eru þeir í raun að reyna?
Hafa þeir nokkuð á sér að leyna?
Enginn veit hví þeir hlaupa
en enginn ætlar að leggja upp laupa.

Hverju sækjast þeir eftir?
Ekki bikar, frægð, og vera bestir.
Í rauninni er það tilgangslaust tóm
þótt barist sé með kjafti og klóm.