Lífið er erfitt.
Það er svo óskiljanlegt stundum.
Ég skil ekki tilveruna.
Ég skil stundum ekki lífið,
en þú þarna, ég sé þig eingöngu,
og skil þig eingöngu.
Þú ert fastur i lífi mínu
ég er ekkert á móti því,
því að þú ert skiljanlegur og ég skil þig
Á meðan þú ert í lífi mínu.
skil ég lífið mikið betur en áður.
Lífið veltist mikið fyrir mér
en þegar þú ert nálægt
skýrir þú allt fyrir mér.
Og þetta sem var að veltast fyrir mér,
þessi flækja,
verður bara að mjög skiljanlegum hlut.
Þú hjálpar mér að lifa.
þú ert svo mikið æði fyrir mig,
ég vil ekki að þú farir.
Því að lífið verður svo skiljanlegt þegar þú ert nálægt,
flækjan farin og verður að svo skiljanlegum hlut.
-Þegar þú komst inn í lífið mitt brosti ég
og ég brosi enn.