Stattu ekki þétt upp við mig
Renndu ekki fingrunum gegnum silkimjúkt hár mitt
Strjúktu tár mín ekki blíðlega í burtu
Kysstu mig ekki ofurlétt á vangann
Horfðu ekki djúpt í augu mín
Hvíslaðu ekki ljúfum ástarorðum í eyra mitt

Líf mitt var ekki samið af Barböru Cartland
og mér er enginn greiði gerður með þessu.