Ég er í partý Það er allt fullt af fullu fólki. Allir skemmta sér vel, nema ég, sem get aðeins hugsað um þig. Best að koma sér heim! Því þó slæmt sé að vera einn og einmana, er enn verra að vera einmana í hóp.
þegar ég les þetta dettur mér helst í hug að þér hafi dottið þetta “punchline” í hug, og drifið þig að bæta einhverju rugli við og kalla það ljóð. “Punchline”-ið er flott, þó svo það mætti kannski orða það örlítið betur. Fyrri hlutinn er sorp.
Æi ég veit það ekki ég tengi þetta einhvern veginn bara við fyllirí, líklegast sökum þess hvað ég get verið mikill fylliraftur sjálfur, fyllirafturinn er nefninlega alltaf einn ásamt þeim sem er dolfallinn yfir honum. Ég er meira fyrir að fara í kringum grautinn svona eins og kötturinn, svolítið undir rós, þetta er meira svona í dagbókina. En ég þakka þér samt fyrir að gefa mér ljóð því það er ekki sjálfsagt að gefa ljóð, takk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..